|
|
|
Á þessu vefsetri er hægt að nálgast fjölþættar upplýsingar um náms- og kennsluaðferðina lausnaleitarnám sem á ensku kallast Problem-Based Learning. Vefsetrið er fyrst og fremst tilkomið vegna áhuga undirritaðrar á notkun tölvu- og upplýsingatækni í skólastarfi en lausnaleitarnám [PBL] er ein þeirra kennsluaðferða þar sem unnt er að nýta tæknina út í ystu æsar. Hugmyndin er sú að hér geti kennarar og aðrir sem áhuga hafa á breyttum kennsluháttum nálgast alhliða upplýsingar um lausnaleitarnám á einum og sama stað. Í því skyni er jafnframt vísað á önnur vefsetur um lausnaleitarnám þar sem væntanlega verður hægt að fá nánari upplýsingar um valið efni ef óskað er. Um er að ræða þróunarverkefni og mun vefurinn verða í stöðugri uppfærslu. Vonast er til að hann nýtist sem öflugt hjálpartæki fyrir þá sem hafa hug á að nota lausnaleitarnám í kennslu eða eru þegar farnir til þess.
© 2000 Þórunn Óskarsdóttir, M.Ed. Allur réttur áskilinn.
Vefstjóri
|